Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1453, 132. löggjafarþing 614. mál: niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar (styrkir til hitaveitna).
Lög nr. 86 13. júní 2006.
Styrkir til hitaveitu á grundvelli 3. tölul. 11. gr. skulu renna óskertir til hitaveitunnar.
Þingskjal 1453, 132. löggjafarþing 614. mál: niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar (styrkir til hitaveitna).
Lög nr. 86 13. júní 2006.
Lög um breytingu á lögum nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 11. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Til starfandi hitaveitna sem hafa einkaleyfi til dreifingar á heitu vatni og stækka veitusvæði sitt með yfirtöku á hitaveitum sem ekki hafa slíkt einkaleyfi, dreifa heitu vatni um dreifikerfi sitt til a.m.k. 5 aðgreindra húsveitna og standa frammi fyrir kostnaðarsömum aðgerðum vegna endurnýjunar dreifikerfis. Ráðherra er heimilt að setja nánari skilyrði í reglugerð.2. gr.
Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þegar um er að ræða styrki á grundvelli 3. tölul. 11. gr. skal miðað við 20.000 kWst ársnotkun á hverja íbúð sem tengd er veitunni. Við ákvörðun styrkfjárhæðar skal miðað við fjárhæð niðurgreiðslu í dreifbýli á veitusvæði Rafmagnsveitna ríkisins.3. gr.
Við 14. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Styrkir til hitaveitu á grundvelli 3. tölul. 11. gr. skulu renna óskertir til hitaveitunnar.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 2. júní 2006.